no
Books
Zacharias Topelius

Sögur herlæknisins 2: Sverðið og plógurinn

Annað bindi hinna ævintýralegu fjölskyldu— og örlagasögu er spannar sögu Finna og Svía yfir tvær aldir. Meginþemað er hringur einn sem býr yfir töframætti, sem minnir um margt á annað frægt verk er kom út hátt í hundrað árum seinna.
Sagan er sögð af herlækni einum í þessum stóra sögulega sagnabálki, stílbragð sem gengur fullkomlega upp í höndum hins sænskumælandi Finna, Zacharias Topelius, og býður frásögninni upp á ákveðið frelsi.
Sagan birtist fyrst í dagblaðsútgáfu árið 1851 en íslensk þýðing er í höndum sjálfs Matthíasar Jochumssonar.

Rithöfundurinn, ljóðskáldið og blaðamaðurinn Zacharias Topelius (1818–1898) var nokkuð víðförull á sínum ferli; var doktor í sagnfræði, áhrifamaður í frelsisbaráttu Finna gegn Rússum og gegndi meðal annars stöðu rektors við Háskólann í Helsinki.rnVerk hans báru með sér mikinn keim af fornum leyndardóm, dulspeki og jafnvel alkemískum fræðum. En styttri verk hans könnuðu þau miklu áhrif sem iðnbyltinginn hafði á finnskt samfélag.
77 nyomtatott oldalak
Első kiadás
2019
Kiadás éve
2019
Már olvasta? Mit gondol róla?
👍👎
fb2epub
Húzza és ejtse ide a fájljait (egyszerre maximum 5-öt)